Bikarúrslitaleikir blakliða KA frá því í fyrra

Blak
Bikarúrslitaleikir blakliða KA frá því í fyrra
Það var heldur betur gaman í fyrra!

Á meðan samkomubannið er í gildi munum við rifja upp nokkur góð augnablik úr sögu KA. Þið þurfið því ekki að hafa áhyggjur af því að fá ekki alvöru KA skammt á næstunni! Við hefjum leik á því að rifja upp bikarúrslitaleiki karla og kvenna í blaki frá því í fyrra.

Kvennalið KA varð Bikarmeistari í fyrsta skiptið í sögunni þegar liðið lagði HK að velli 3-1 eftir frábæran leik sem er klárlega þess virði að rifja upp í heild sinni.

Karlalið KA varði svo titil sinn með 3-0 sigri á Álftnesingum í kjölfarið en þetta var níundi Bikarmeistaratitill KA í karlaflokki. Því miður vantar hluta af þriðju hrinu í upptökuna en annars er leikurinn í heild sinni hér fyrir neðan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is