Blakið fer af stað í kvöld!

Blak
Blakið fer af stað í kvöld!
Spennandi vetur framundan! (mynd: Egill Bjarni)

KA tekur á móti Þrótti Fjarðabyggð í KA-Heimilinu klukkan 20:00 í kvöld en þetta er fyrsti leikur vetrarins í blakinu. Karlalið KA lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð en þurfti að játa sig sigrað gegn sterku liði Hamars.

Strákarnir hafa nýtt sumarið vel og verður áhugavert að fylgjast með ögn breyttu KA liði í vetur og spennandi leikur gegn spræku liði Þróttar Fjarðabyggðar í kvöld. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í KA-Heimilið en fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann í beinni útsendingu á KA-TV.

Kvennalið KA hefur svo leik á miðvikudaginn er lið Þróttar Reykjavíkur kemur norður og blakveislan því heldur betur að fara af stað.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is