Blakveisla um helgina í KA-Heimilinu

Blak
Blakveisla um helgina í KA-Heimilinu
Stór helgi framundan í blakinu (mynd: EBF)

Það verður nóg um að vera í blakinu í KA-Heimilinu um helgina þegar alls þrír heimaleikir í meistaraflokki fara fram. Helgin hefst kl. 15:00 á laugardeginum þegar kvennalið KA tekur á móti Þrótti Reykjavík í Mizunodeild kvenna. Stelpurnar eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga og ætla sér klárlega að halda því áfram.

Á sunnudaginn tekur karlalið KA svo á móti Vestra en KA liðið er með 3 stig eftir fyrstu 3 leiki vetrarins og þarf því klárlega á sigri að halda en leikurinn hefst klukkan 13:00. Í kjölfarið tekur KA-B á móti Vestra í 1. deild kvenna en stelpurnar unnu fyrsta heimaleik vetrarins á dögunum og ætla sér klárlega í annan sigur um helgina.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is