Spaðadeild óskar eftir þjálfara

Tennis og badminton

Spaðadeild KA óskar eftir badmintonþjálfara fyrir komandi vetur. Gerð er krafa á reynslu úr badminton eða þjálfun en Iðkendur deildarinnar eru á aldrinum 5-18 ára.

Æfingar deildarinnar fara fram í Naustaskóla og KA-Heimilinu en áætlað er að æfingarnar verði sex í hverri viku. Gert er ráð fyrir að keppt verði á tveimur mótum í vetur, einu á hausti og öðru að vori til.

Mikið og gott uppbyggingarstarf hefur farið fram hjá Spaðadeild KA undanfarin ár og hefur iðkendum fjölgað þó nokkuð auk þess iðkendur á vegum deildarinnar eru farnir að keppa á helstu mótum landsins.

Áhugasamir hafi samband í spadadeild@ka.is.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is