Spaðadeild undirbýr sig fyrir Norðurlandsmótið

Tennis og badminton

Það hefur verið mikill uppgangur í Spaðadeild KA undanfarið og kepptu meðal annars þrír einstaklingar fyrir hönd félagsins á meistaramótinu í badminton á dögunum. Næst á dagskrá er svo Norðurlandsmótið í badminton en það verður haldið á Siglufirði dagana 10.-11. maí.

Keppt verður í öllum flokkum en flokkar U11 og U13 hefja keppni á föstudeginum kl. 17:00. Til að skrá keppendur á vegum KA er best að senda póst á spadadeild@ka.is en einnig er hægt að láta þjálfara vita.

Þátttökugjöld: Einliðaleikur 1.500 kr., U11, tvílið- og tvenndarleikur 1.000 kr.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is