Flottur árangur KA á bikarmóti yngriflokka

Blak
Flottur árangur KA á bikarmóti yngriflokka
Stelpurnar í 3. flokki voru flottar um helgina

Um helgina fór fram bikarmót í 2., 3. og 4. flokki í blaki en keppt var í Kópavogi. KA senti alls 5 lið til leiks og voru 35 iðkendur félagsins sem spreyttu sig á þessu skemmtilega móti. Það má með sanni segja að krakkarnir hafi staðið sig með prýði og voru KA til fyrirmyndar.

Mikill uppgangur hefur verið í starfi blakdeildar KA undanfarin ár sem sést hvað best á titlasöfnun meistaraflokksliða okkar. Það er ljóst að það eru áfram spennandi tímar framundan í blakinu og hvetjum við alla krakka sem hafa áhuga til að kíkja við á æfingu sem allra fyrst!


Stelpurnar í 4. flokki stóðu fyrir sínu


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is