Heimaleikir um helgina hjá báðum liðum

Blak

Blakið er komið aftur á fullt eftir landsliðspásu og leika bæði karla- og kvennalið KA heimaleiki um helgina. Strákarnir spila í kvöld, föstudag, klukkan 20:15 gegn Þrótti Fjarðabyggð og stelpurnar svo á sunnudag einnig gegn Þrótti Fjarðabyggð klukkan 16:00.

Eftir að hafa tapað fyrsta leik tímabilsins hafa strákarnir okkar nú unnið tvo leiki í röð og eru staðráðnir í að halda áfram flottri spilamennsku gegn Austfirðingum í kvöld. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta en annars er leikurinn í beinni á KA-TV á 800 krónur.

livey.events/ka-tv

Stelpurnar okkar hafa verið algjörlega magnaðar en þær töpuðu í hörkuleik gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ í vikunni í algjörum toppslag. Fram að leiknum höfðu stelpurnar unnið 20 leiki í röð hvorki meira né minn!

Í þessari sigurgöngu vann liðið alla þá titla sem í boði eru, Íslandsmeistarar, Bikarmeistarar, Deildarmeistarar og Meistarar Meistaranna. Alls unnust 60 hrinur og töpuðust aðeins 7 sem er ótrúlegur árangur!

Það er alveg klárt að stelpurnar ætla sér aftur á sigurbraut og því eina vitið að styðja þær í baráttunni á sunnudaginn. Rétt eins og með leikinn hjá strákunum verður leikurinn í beinni á KA-TV fyrir 800 krónur fyrir þá sem ekki komast á leikinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is