KA fær Fylki í heimsókn kl. 20:00

Blak

KA tekur á móti Fylki í Mizunodeild karla í blaki klukkan 20:00 í KA-Heimilinu. KA liðið hefur verið á góðri siglingu að undanförnu og unnið síðustu fimm leiki sína eftir tap gegn Hamarsmönnum í fyrstu umferð deildarinnar.

Strákarnir þurfa hinsvegar nauðsynlega að sækja öll stigin sem í boði eru í kvöld en KA liðið hefur leikið þremur leikjum minna en Hamar og HK sem eru á toppnum. Það er því mikilvægt að missa þau ekki langt framúr sér en HK hefur rétt eins og KA tapað fjórum stigum í vetur en Hamar er með fullt hús stiga í toppsætinu.

Fylkismenn eru hinsvegar á botni deildarinnar og eru enn án stiga þrátt fyrir að hafa komist nálægt því í nokkrum leikjum. Þar á meðal gerðist það í fyrri leik liðanna er liðin mættust í Árbænum. KA vann að lokum 1-3 sigur en KA vann fjórðu hrinuna 27-29 eftir upphækkun og hefði því hæglega getað misst af stigum þar.

Það er því ljóst að verkefni kvöldsins verður krefjandi og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála. Engir áhorfendur eru leyfðir á leiknum en hann verður í beinni á KA-TV og hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is