KA hyggur á hefndir í Kópavoginum

Blak

KA sækir HK heim í toppslag í Mizunodeild kvenna í blaki klukkan 15:00 í dag en þarna mætast liðin sem mættust einmitt í úrslitaleik Kjörísbikarsins um síðustu helgi. HK fór þar með 3-0 sigur af hólmi og ljóst að stelpurnar okkar hyggja á hefndir í dag.

Það má búast við fjörugum leik enda liðin háð ansi marga baráttuleiki undanfarin ár og ljóst að alvöru blakunnendur vilja ekki láta þennan leik framhjá sér fara. Leikurinn verður í beinni á streymissíðu BLÍ og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála ef þú kemst ekki á völlinn, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is