KA tekur á móti Álftanes á morgun

Blak
KA tekur á móti Álftanes á morgun
Spennandi leikur framundan!

Það er komið að endasprettinum í Mizunodeild kvenna í blaki en KA tekur á móti Álftanesi á morgun, miðvikudag, klukkan 20:15 í KA-Heimilinu. KA liðið er með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar og þarf á sigri að halda til að færast skrefi nær því að verja Deildarmeistaratitilinn.

Gestirnir eru hinsvegar á botni deildarinnar en þrátt fyrir að liðið hafi aðeins unnið einn leik í vetur hefur liðið á köflum sýnt fína takta og vann meðal annars hrinu gegn KA liðinu í leik liðanna á Álftanesi. Það er því ljóst að stelpurnar þurfa að mæta klárar í slaginn til að komast aftur á sigurbrautina eftir tapið í oddahrinu í síðasta leik.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta og styðja stelpurnar til sigurs en fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á KA-TV og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is