KA tekur á móti Álftanes í kvöld

Blak

Fyrsti heimaleikur blaktímabilsins er í kvöld þegar karlalið KA tekur á móti Álftanes í KA-Heimilinu klukkan 20:15. Strákarnir fóru ekki nægilega vel af stað í deildinni um helgina þegar þeir töpuðu tvívegis gegn Þrótti Neskaupstað og eru staðráðnir í að sækja fyrstu stigin í kvöld.

Miguel Mateo lék ekki með KA um síðustu helgi en er mættur aftur og verður því með liðinu í kvöld. Alexander Arnar Þórisson verður hinsvegar fjarri góðu gamni en hann æfir þessa dagana með Þýska liðinu TV Rottenburg.

Liðin mættust á dögunum í Meistari Meistaranna þar sem KA vann 3-2 sigur í oddahrinu og má því búast við hörkuleik í kvöld.

Ársmiðasala blakdeildar hefst í kvöld en ársmiðinn kostar 7.500 krónur og gildir á alla heimaleiki karla- og kvennaliðs KA í Mizunodeildinni. Hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA!

Fyrir þá sem ekki komast í KA-Heimilið verður leikurinn í beinni útsendingu á KA-TV og má nálgast útsendinguna hér fyrir neðan:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is