Líf og fjör á fyrirtækjamóti KA í blaki

Blak
Líf og fjör á fyrirtækjamóti KA í blaki
Thula kom sá og sigraði um helgina!

Blakdeild KA stóð fyrir fyrirtækjamóti í blaki í KA-Heimilinu á föstudaginn þar sem stórglæsileg tilþrif litu dagsins ljós. Fjölmörg fyrirtæki sendu lið til leiks á mótið þar sem gleðin var í fyrirrúmi enda getustig leikmanna ansi misjafnt og aðalatriðið að hrista hópinn vel saman.

Starfsfólk Thula hampaði að lokum sigri á mótinu eftir mikla spennu en lið Eflingar varð í 2. sæti og KPMG endaði í 3. sæti mótsins.

Mótið tókst ákaflega vel í alla staði og er stefnan sett á að halda annað slíkt mót í lok janúar næstkomandi og því um að gera að æfa blakið betur fyrir komandi átök!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is