Mateo og Gígja stýra strákunum í vetur

Blak
Mateo og Gígja stýra strákunum í vetur
Mateo og Gígja stýra skútunni í vetur

Miguel Mateo Castrillo er tekinn við sem aðalþjálfari karlaliðs KA í blaki og honum til aðstoðar verður Gígja Guðnadóttir. Mateo verður spilandi þjálfari en hann hefur verið einhver allra öflugasti leikmaður efstu deildar karla undanfarin ár og farið fyrir gríðarlega sigursælu liði KA.

Auk þess hefur hann verið aðalþjálfari kvennaliðs KA en hann hefur lyft kvennastarfinu okkar upp á hæsta plan en stelpurnar eru einmitt Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar eftir fullkomið tímabil á síðasta vetri.

Mikil uppbygging hefur verið í karlaliði KA að undanförnu og verður spennandi að fylgjast með strákunum undir handleiðslu Mateo í vetur en hann mun einnig halda áfram sínu frábæra starfi með kvennalið félagsins.

Gígja verður honum svo til halds og trausts en Gígja er fyrirliði kvennaliðs KA og er auk þess í lykilhlutverki í A-landsliði Íslands. Við óskum þeim Mateo og Gígju til hamingju og hlökkum svo sannarlega til að fylgjast með framgöngu blakliðanna okkar í vetur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is