Mikilvægir útileikir í blakinu í dag

Blak
Mikilvægir útileikir í blakinu í dag
Risaleikur í toppbaráttunni kvennamegin í dag

Það er ansi stór dagur í blakinu í dag þegar bæði karla- og kvennalið KA leika á útivelli. Konurnar ríða á vaðið í einum stærsta leik tímabilsins þegar KA sækir Aftureldingu heim klukkan 14:00. Bæði lið hafa unnið alla leiki sína í vetur og ljóst að það verður hart barist um stigin í þeim leik. Liðin mætast svo aftur á morgun.

Þá sækir KA Álftnesinga heim í Mizunodeild karla klukkan 18:00. Liðin eru í 3. og 5. sæti deildarinnar og klárt að KA liðið þarf á sigri að halda til að koma sér betur inn í baráttuna í deildinni en byrjunin á tímabilinu hefur valdið vonbrigðum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is