Risahelgi framundan! 5 leikir á KA-TV

Fótbolti | Handbolti | Blak
Risahelgi framundan! 5 leikir á KA-TV
Veisla framundan!

Það er heldur betur RISA helgi framundan hjá meistaraflokksliðum okkar en alls fara fram sex spennandi leikir fram í fótboltanum, handboltanum og blakinu á laugardaginn. Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að mæta og styðja okkar lið til sigurs en KA-TV og Stöð 2 Sport munu sýna frá hasarnum fyrir þá sem ekki komast á völlinn!

Í fótboltanum hefja KA og Þór/KA leik í Lengjubikarnum en bæði lið eiga heimaleik í Boganum. KA tekur á móti Fylki klukkan 15:00 og Þór/KA tekur á móti Íslandsmeisturum Vals klukkan 17:00. Báðir leikir verða í beinni á KA-TV.

Í handboltanum sækja bæði KA og KA/Þór Stjörnuna heim í Garðabæinn. KA/Þór ríður á vaðið klukkan 16:00 og karlarnir taka svo við klukkan 18:00. Báðir leikir verða í beinni á Stöð 2 Sport. Ungmennalið KA mun svo sækja ungmennalið FH heim klukkan 16:30 en því miður verður leikurinn ekki sýndur hjá FH-ingum.

Í blakinu fá bæði karla- og kvennalið KA stórlið HK í heimsókn. Karlarnir hefja leikinn klukkan 15:00 og konurnar taka svo við klukkan 17:00. Á sunnudeginum mætast svo KA B og HK B í 1. deild kvenna klukkan 13:00 og verða allir þessir leikir í beinni á KA-TV.

Hægt er að nálgast allar útsendingar KA-TV með því að smella á KA-TV hlekkinn uppi til hægri á síðunni eða með slóðinni ka.is/katv 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is