Risaleikur í blakinu í kvöld!

Blak

KA tekur á móti HK í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í blaki karla klukkan 19:00 í kvöld. Liðin hafa barist um stóru titlana undanfarin ár og má svo sannarlega búast við hörkuleik!

Liðin leika sitthvorn heimaleikinn og því skiptir öllu máli að við fjölmennum í KA-Heimilið og styðjum strákana til sigurs. Ef liðin vinna sitthvorn leikinn verður leikin gullhrina í Kópavoginum og gæti þetta því verið síðasti heimaleikur tímabilsins. Hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA!

Fyrir þá sem komast ómögulega á leikinn verður hann í beinni útsendingu á KA-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is