Skemmtimót KA í strandblaki á fimmtudaginn

Blak

Blakdeild KA stendur fyrir skemmtimóti í strandblaki á fimmtudaginn, 15. júlí, og má reikna með miklu fjöri á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi. Fyrirkomulagið er að spilað verður í kynjaskiptum deildum þar sem liðunum verður raðað í deildir eftir styrkleika.

Að vanda er keppt í tveggja manna liðum en skráningar og óskir sendist á netfangið: blak@ka.is. Við skráningu þarf að koma fram kennitala, netfang og símanúmer beggja liðsmanna í skráningunni.

Skráningarfrestur og staðfesting (eða afskráning fyrri skráningar) er til hádegis miðvikudaginn 14. júlí. Mótsgjald er 2.500.- krónur á hvern einstakling og greiðist inn á reikning 0162-26-102289, kt.670890-2289.

Smelltu hér til að skoða leikjaplan mótsins

Mótið hefst klukkan 16:00 og hlökkum við svo sannarlega til að sjá ykkur í sandinum!

Skemmtimót KA á facebook


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is