Stelpurnar mæta á Neskaupstað í kvöld

Blak

KA sækir Þrótt Neskaupstað heim í lokaleik Mizunodeildar kvenna í blaki í dag en nýverið tók blaksambandið þá ákvörðun að skera út leiki í deildarkeppninni til að tryggja það að úrslitakeppnin fari fram í vor.

Öll lið deildarinnar munu taka þátt í úrslitakeppninni en efstu tvö lið deildarinnar fara beint áfram í undanúrslitin á meðan liðin í 3.-6. sæti berjast um sæti þar á meðal. Það er því mikilvægt að sækja þrjú stig í kvöld og um að gera að fylgjast vel með gangi mála á streymissíðu BLÍ, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is