Strandblaksmót KA um Versló!

Blak
Strandblaksmót KA um Versló!
Það geta allir reynt fyrir sér í sandinum!

Blakdeild KA í samvinnu við Icelandic Summer Games verður með blakmót í Kjarnaskógi um verslunarmannahelgina. Mótin eru tvö og ættu því allir að geta tekið þátt í fjörinu og tilvalið að hreyfa sig aðeins um helgina í góðum félagsskap.

Það er kominn event fyrir mótin á facebook.

Á báðum mótum leika tveir leikmenn í hverju liði og má búast við miklu fjöri enda leikgleðin í fyrirrúmi á mótunum okkar. Á svæðinu verður vant blakfólk sem hjálpar til við að koma öllum af stað auk þess að leiðbeina og halda léttri og góðri stemningu.

Skráningargjald er 2.000 krónur á hvern leikmann og innifalið í verðinu er pizza eða samloka ásamt drykk. Sjoppa verður á staðnum fyrir þyrsta áhorfendur enda ríkir iðulega skemmtileg strandarstemning í logninu í Kjarnaskógi.

Skráning fer fram hjá agust@ka.is og mikilvægt að taka fram nafn á liði og símanúmer tengiliðs. Athugið að lokað verður fyrir skráningu fimmtudaginn 30. júlí kl. 22:00.

Fjölskyldumót á laugardeginum

Á laugardeginum verður fjölskyldumót þar sem annar leikmaður þarf að vera yngri en 16 ára en hinn eldri. Mótið hefst klukkan 12:00.

Paramót á sunnudeginum

Á sunnudeginum verður svo paramót en í hverju liði þarf að vera einn karl/strákur og ein kona/stelpa. Mótið hefst klukkan 13:00.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is