Úrslitaeinvígi kvenna hefst í kvöld!

Blak
Úrslitaeinvígi kvenna hefst í kvöld!
Gígja og Elma eru klárar í slaginn!

Úrslitaeinvígi KA og HK í blaki kvenna hefst í kvöld er liðin mætast í Fagralundi klukkan 19:30. KA liðið hefur unnið bæði Deild og Bikar á núverandi tímabili og er klárt mál að stelpurnar ætla sér þrennuna. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í Kópavog í kvöld og styðja stelpurnar til sigurs!

Þær Gígja Guðnadóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir sem hafa farið mikinn með KA liðinu í vetur ræddu tímabilið til þessa og komandi einvígi gegn HK í Taktíkinni í gær. Taktíkin er áhugaverður þáttur á N4 þar sem Skúli Bragi Magnússon kynnir sér íþróttalífið á Akureyri og í nágrenni bæjarins.

Þá minnum við á að leikurinn í kvöld verður í beinni á SportTV auk þess sem næstu tveir leikir liðanna fara fram í KA-Heimilinu, vinna þarf þrjá leiki til að hampa Íslandsmeistaratitlinum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is