Útileikur á Álftanesi hjá körlunum

Blak

KA sækir Álftanes heim í Mizunodeild karla í blaki klukkan 16:00 í dag en KA liðið hefur verið á miklu skriði undanfarið og unnið alla leiki sína eftir að deildin fór aftur af stað eftir Covid pásu. Nú síðast vannst frábær sigur á Aftureldingu í oddahrinu sem ætti að gefa mönnum mikið sjálfstraust.

Lið Álftanes er sýnd veiði en ekki gefin en liðið hefur unnið einn leik af fyrstu fjórum og klárt að strákarnir þurfa að mæta vel stemmdir til leiks til að tryggja mikilvæg þrjú stig. KA er fyrir leikinn í 3. sæti deildarinnar með 11 stig og hefur misst af fjórum stigum til þessa. Á toppi deildarinnar er svo lið Hamars með fullt hús stiga eftir sjö leiki.

Engir áhorfendur eru leyfðir á leik dagsins en hann verður í beinni á streymissíðu Blaksambands Íslands en hægt er að nálgast hana með því að smella hér.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is