Valdís og Gísli léku með U19 á Norðurlandamótinu

Blak
Valdís og Gísli léku með U19 á Norðurlandamótinu
Gísli og Valdís stóðu sig vel á mótinu

KA átti tvo fulltrúa með U19 ára landsliðum Íslands í blaki sem tóku þátt í Norðurlandamóti NEVZA sem fram fór í Finnlandi á dögunum. Þetta voru þau Gísli Marteinn Baldvinsson og Valdís Kapitola Þorvarðardóttir og stóðu þau sig bæði með prýði.

Strákarnir enduðu í 5. sæti á mótinu eftir að hafa unnið England í lokaleik sínum í oddahrinu. Þar hefndu strákarnir fyrir tap gegn Englendingum fyrr í mótinu en einnig lagði íslenska liðið lið Færeyja 3-1 en tapaði 0-3 gegn heimamönnum í Finnlandi.

Stelpurnar hinsvegar urðu að sætta sig við 7. og neðsta sætið á mótinu eftir tap gegn bæði Færeyjum og Englandi í umspili um 5. sætið. Þar áður höfðu stelpurnar þurft að sætta sig við töp gegn sterkum liðum Noregs og Svíþjóð.

Vissulega svekkjandi að stelpurnar hafi tapað sínum leikjum á mótinu en þó verður að viðurkennast að það er mikill uppgangur í blakinu og eru íslensku ungmennalandsliðin að þokast nær jafnöldrum sínum í getu og því mikilvægt að BLÍ haldi áfram því starfi að hlúa vel að liðunum okkar og senda þau á helstu mót í kringum okkur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is