Valdís og Tea í úrvalsliði BLÍ

Blak

Blaksamband Íslands valdi í dag úrvalslið fyrri hluta úrvalsdeildanna í blaki við hátíðlega athöfn. KA á tvo fulltrúa í liði úrvalsdeildar kvenna en það eru þær Valdís Kapitola Þorvarðardóttir og Tea Andric en báðar hafa þær staðið sig frábærlega með liði KA sem trónir á toppi deildarinnar.

Valdís var valin besti frelsinginn eða libero og Tea er önnur af tveimur köntum liðsins og óskum við þeim til hamingju með valið.

Á sama tíma var dregið í 8-liða úrslit Kjörísbikarsins þar sem karlalið KA fékkm heimaleik gegn Aftureldingu og kvennalið KA fékk útileik gegn Þrótti Reykjavík.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is