6 frá KA í æfingahópum U15 og U16

Fótbolti
6 frá KA í æfingahópum U15 og U16
Elvar, Ívar og Valdi eru í U16 hópnum

KA á sex fulltrúa í æfingahópum U15 og U16 ára landsliða Íslands í knattspyrnu sem æfa þessa dagana. Báðir hópar æfa í Skessunni í Hafnarfirði og er frábært að við eigum jafn marga fulltrúa og raun ber vitni á æfingunum.

Elvar Máni Guðmundsson, Ívar Arnbro Þórhallsson og Valdimar Logi Sævarsson voru valdir í U16 hópinn en landsliðinu stýrir hann Jörundur Áki Sveinsson. Þá er einnig í hópnum hann Nóel Atli Arnórsson en Nóel leikur í akademíu Álaborgar í Danmörku en æfir með KA öll sumur.


Mikael, Aron og Jóhann spenntir á flugvellinum fyrir æfingar U15 hópsins

Þá voru þeir Jóhann Mikael Ingólfsson, Mikael Breki Þórðarson og Aron Daði Stefánsson valdir í U15 hópinn sem hann Lúðvík Gunnarsson stýrir.

Við óskum strákunum innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis á æfingunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is