7 frá Þór/KA í æfingahóp A-landsliðsins

Fótbolti
7 frá Þór/KA í æfingahóp A-landsliðsins
Stelpurnar fá tækifærið! (mynd: Þórir Tryggva)

Jón Þór Hauksson valdi í dag sinn fyrsta æfingahóp en hann var nýverið ráðinn landsliðsþjálfari hjá kvennalandsliðinu. Hópurinn er nokkuð stór eða alls 30 leikmenn og eru allir á mála hjá íslenskum félagsliðum. Þór/KA á alls 7 fulltrúa í hópnum sem er auðvitað mikil viðurkenning á því flotta starfi sem hefur verið unnið í kringum liðið undanfarin ár.

Okkar fulltrúar í hópnum eru þær Andrea Mist Pálsdóttir, Anna Rakel Pétursdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Lillý Rut Hlynsdóttir og Sandra María Jessen.

Hópurinn mun koma saman til æfinga 9.-11 nóvember og fara æfingarnar fram í Fífunni, Kórnum og Egilshöll. Við óskum okkar fulltrúum til hamingju með valið sem og góðs gengis á æfingunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is