Angela, Amalía og Krista á úrtaksæfingum U16

Fótbolti

Þór/KA átti þrjá fulltrúa á úrtaksæfingum U16 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu sem fóru fram á dögunum. Þetta voru þær Angela Mary Helgadóttir, Amalía Árnadóttir og Krista Dís Kristinsdóttir og stóðu stelpurnar sig vel á æfingunum.

Stelpurnar hafa verið fastamenn í undanförnum landsliðshópum en þær spiluðu bæði með Þór/KA/Hömrunum í 3. flokki og Hömrunum í 2. deildinni á nýliðnu sumri og eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is