Angela og Iðunn í æfingahóp U17

Fótbolti
Angela og Iðunn í æfingahóp U17
Angela og Iðunn fá spennandi verkefni

Þór/KA á tvo fulltrúa í æfingahóp U17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu sem kemur saman til æfinga dagana 10.-12. janúar næstkomandi. Þetta eru þær Angela Mary Helgadóttir og Iðunn Rán Gunnarsdóttir og óskum við þeim innilega til hamingju með valið.

Magnús Örn Helgason er þjálfari liðsins en næsta verkefni U17 eru milliriðlar undankeppni EM 2022. Þar er Ísland í riðli með Írlandi, Finnlandi og Slóvakíu en milliriðillinn verður leikinn á Írlandi 23.-29. mars.

Það er því spennandi verkefni framundan og óskum við stelpunum góðs gengis á æfingunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is