Arnar Grétarsson framlengir við KA

Fótbolti
Arnar Grétarsson framlengir við KA
Arnar stýrir áfram KA liðinu (mynd: Sævar Geir)

Arnar Grétarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Knattspyrnudeild KA og mun því áfram stýra KA. Arnar sem tók við liðinu í júlí síðastliðnum hefur komið af miklum krafti inn í starfið og aðeins tapað einum leik í Pepsi Max deildinni og híft liðið upp töfluna.

„Ég er bæði ánægður og stoltur með þessa niðurstöðu“, segir Hjörvar Maronsson formaður knattspyrnudeildar KA. „Arnar er afar metnaðarfullur og einstaklega faglegur í allri sinni vinnu og viðhorfi til félagsins. Það ríkir mikil ánægja með hans störf meðal leikmanna okkar sem og allra KA manna. Við væntum þess að Arnar haldi áfram að móta liðið sem og einstaka leikmenn okkar en innan félagsins er, auk reynslubolta okkar, fjöldinn allur af efnilegum metnaðarfullum strákum sem bíða þess að bera uppi framtíðar lið okkar KA manna. Að öllu þessu sögðu tel ég að samkomulag okkar við Arnar Grétarsson séu frábærar fréttir til stuðningsmanna KA og sýni best metnað félagsins í því að ná sífellt meiri árangri. Þessi metnaður er afskaplega ríkur í félaginu öllu og því gaman að vera KA maður“.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is