Aron Dagur framlengir við KA um 3 ár

Fótbolti
Aron Dagur framlengir við KA um 3 ár
Frábærar fréttir fyrir fótboltann í KA

Aron Dagur Birnuson markvörður KA hefur framlengt samning sínum við Knattspyrnudeild um þrjú ár. Aron er einn efnilegasti markvörður landsins en hann verður 20 ára í sumar. Hann á 15 leiki fyrir unglingalandslið Íslands og hefur verið í kringum U-21 árs landsliðið að undanförnu.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Aron Dagur leikið fjóra leiki fyrir KA í deild og bikar auk þess sem hann lék alla 24 leiki Völsungs á síðasta sumri þar sem hann var á láni. Það er klárt mál að þessi samningur er mikið heillaskref fyrir báða aðila en í sumar mun KA liðið treysta á unga og uppaldna markverði sem er eitthvað sem fá lið í Pepsi Max deildinni gera.

Hasarinn í Pepsi Max deildinni hefst 27. apríl næstkomandi er KA sækir ÍA heim og er mikil spenna fyrir sumrinu. Það er ljóst að við ætlumst til mikils af Aroni Degi sem og liðinu öllu og verður gaman að fylgjast með KA liðinu í sumar!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is