Aron Dagur í æfingahóp U21

Fótbolti
Aron Dagur í æfingahóp U21
Spennandi verkefni framundan hjá U21

Aron Dagur Birnuson markvörður KA hefur verið valinn í æfingahóp U21 árs landsliðs Íslands í knattspyrnu sem mun leika gegn Ítalíu og Englandi á næstunni. Aron Dagur stóð sig mjög vel með KA liðinu í sumar og á því tækifærið svo sannarlega skilið.

Leikurinn gegn Ítölum er liður í undankeppni EM þar sem íslenska liðið er með 9 stig eftir fjóra leiki og er í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í lokakeppninni. Leikurinn gegn Englendingum er hinsvegar vináttuleikur.

Við óskum Aroni til hamingju með valið sem og góðs gengis í þessu spennandi verkefni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is