Birgir framlengir við KA og lánaður til Leiknis

Fótbolti

Birgir Baldvinsson skrifaði á dögunum undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út árið 2023. Á sama tíma skrifaði hann svo undir lánssamning hjá Leikni Reykjavík en hann lék einnig á láni þar síðari hluta síðasta tímabils.

Birgir sem er nýorðinn tvítugur er efnilegur varnarmaður og er uppalinn hjá KA en Leiknir tryggði sér sæti í Pepsi Max deildinni á síðasta tímabili og því fær Birgir okkar gott tækifæri í efstu deild með Leiknismönnum á komandi sumri.

Undanfarin ár hefur Birgir glímt við meiðsli og hefur af þeim sökum spilað minna með meistaraflokki KA en hefði annars verið en hann hefur sýnt mikinn karakter í endurhæfingu og verður svo sannarlega spennandi að fylgjast með honum á komandi árum.

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is