Daníel og Aron Elí til Kína með U-21

Fótbolti
Daníel og Aron Elí til Kína með U-21
Daníel og Aron hafa staðið sig vel með U-21

Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 21 árs og yngri er á leiðinni til Kína þar sem liðið mun taka þátt í fjögurra liða móti dagana 15.-19. nóvember næstkomandi. Strákarnir munu þar leika gegn Mexíkó, Kína og Tælandi í borginni Chongqing.

KA á tvo fulltrúa í hópnum og eru það þeir Aron Elí Gíslason og Daníel Hafsteinsson. Þeir voru báðir í síðasta hóp sem mætti Spánverjum í lokaleik undankeppni EM í október en Daníel kom inná sem varamaður í leiknum.

Við óskum strákunum til hamingju með valið sem og góðs gengis í Kína. Það er ljóst að þetta verður mikið ævintýri fyrir þá.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is