Daníel og Torfi spiluðu með U21 gegn Tékkum

Fótbolti
Daníel og Torfi spiluðu með U21 gegn Tékkum
Torfi í leiknum í dag.

Daníel Hafsteinsson og Torfi Tímóteus Gunnarsson léku báðir með U21 landsliði Íslands sem gerði í dag jafntefli í vináttuleik gegn Tékklandi á Pinatar á Spáni.

Um var að ræða fyrstu leiki U21 landsliðsins undir stjórn Arnars Viðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen sem nýverið tóku við liðinu.

Íslenska liðið komst yfir eftir 66. mínútna leik þegar að Alex Þór Hauksson skoraði furðulegt mark sem virtist vera fyrirgjöf í fyrstu en inn í markið fór boltinn og óhætt að segja að vindurinn hafi hjálpað íslenska liðinu í markinu þar sem markvörður Tékka misreiknaði boltann illilega. Tékkar voru hins vegar ekki lengi að jafna metin og jöfnuðu leikinn á 72. mínútu.

Torfi lék allann leikinn í vörn Íslands en Daníel kom inn á sem varamaður þegar að um stundarfjórðungur var eftir af leiknum.  Liðið heldur nú til Katar þar sem liðið leikur annan vináttuleik gegn heimamönnum á mánudaginn 25.mars. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is