David Cuerva til liðs við KA

Fótbolti
David Cuerva til liðs við KA
Bjóðum David velkominn í KA!

Knattspyrnudeild KA fékk í dag annan öflugan spænskan liðsstyrk er David Cuerva Barroso skrifaði undir samning út árið við félagið. David er 28 ára miðjumaður sem mun veita sóknarlínu okkar aukinn kraft.

Iosu Villar gekk til liðs við KA á dögunum og lék sinn fyrsta leik fyrir liðið í 1-1 jafnteflinu gegn ÍA um nýliðna helgi og kom strax sterkur inn. Það verður gaman að sjá hvernig tilkoma þessara tveggja öflugu spænsku miðjumanna mun styrkja okkar lið fyrir síðari hluta sumarsins og ætlumst við til mikils af þeim tveimur.

Næsti leikur KA er á sunnudaginn er FH kemur í heimsókn og þurfum við áfram á ykkar magnaða stuðning að halda kæru KA-menn, sjáumst á Greifavellinum og áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is