Dómaranámskeið á vegum KDN og KSÍ

Fótbolti

Knattspyrnudómarafélag Norðurlands og KSÍ standa fyrir dómaranámskeiði mánudaginn 11. maí klukkan 19:30. Námskeiðið verður haldið í sal Einingar-iðju að Skipagötu 14 og kennari er Þóroddur Hjaltalín.

KA hvetur alla sem hafa áhuga til að skrá sig enda er alltaf þörf á fleiri öflugum aðilum í dómarastéttina. Námskeiðinu lýkur með prófi sem mun veita viðkomandi unglingadómararéttindi.

Skráning fer fram í netfanginu kdn@simnet.is.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is