Endurkomusigur Þórs/KA gegn KR (myndir)

Fótbolti
Endurkomusigur Þórs/KA gegn KR (myndir)
Frábær sigur staðreynd! (mynd: EBF)

Þór/KA komst aftur á sigurbraut þegar liðið vann afar góðan 2-1 sigur á KR á Þórsvellinum í gær. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum og því ansi mikilvæg stig í húfi. Enda varð úr að leikur liðanna var hörkuspennandi og því ansi sætt að stelpurnar skyldu ná í stigin þrjú að lokum.

Bæði lið fóru af varfærni inn í leikinn og var fyrri hálfleikur því frekar daufur og gengu liðin markalaus inn í hléið. En það var allt annað upp á teningunum í þeim síðari og strax á 53. mínútu kom fyrsta mark leiksins þegar Lára Kristín Pedersen kom gestunum yfir með óverjandi neglu af rúmlega 20 metra færi.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Karen María Sigurgeirsdóttir varð svo fyrir meiðslum og þurfti að yfirgefa völlinn, í hennar stað kom Margrét Árnadóttir og Margrét var ekki lengi að snúa leiknum. Innan við mínútu eftir að koma inná laumaði hún sér á fjærstöngina og Jakobína Hjörvarsdóttir átti glæsilega sendingu og Margrét kláraði af sinni alkunnu snilld. Staðan var því orðin 1-1 og aðeins um 10 mínútur búnar af síðari hálfleiknum.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Sævars Geirs frá leiknum

Í kjölfarið sóttu bæði lið stíft og greinilegt að hér yrði sótt til sigurs. Harpa Jóhannsdóttir varði nokkrum sinnum frábærlega í markinu og það reyndist heldur betur mikilvægt því á 75. mínútu uppskar Margrét vítaspyrnu þegar hún sparkaði boltanum fyrir en boltinn fór í höndina á Ingunni Haraldsdóttur og ekki annað í stöðunni en að dæma víti.

Margrét reyndist þó einnig brotleg því hún var með eyrnalokka og þurfti því að yfirgefa völlinn til að láta fjarlægja þá og uppskar einnig gult spjald. Hún gat því ekki framkvæmt spyrnuna og á punktinn steig því fyrirliðinn sjálfur Arna Sif Ásgrímsdóttir. Arna sýndi mikla yfirvegun og sendi Ingibjörgu í vitlaust horn og staðan því orðin 2-1.

Þrátt fyrir um sjö mínútur af uppbótartíma urðu mörkin ekki fleiri og stelpurnar fögnuðu gríðarlega mikilvægum sigri. Þór/KA er þar með komið upp í 10 stig eftir 7 leiki og er jafnt Selfyssingum í 4.-5. sæti deildarinnar. Næsti leikur er svo útileikur gegn Þrótti þann 6. ágúst næstkomandi en Þróttarar hafa komið mörgum á óvart með góðri spilamennsku það sem af er sumri og má búast við spennandi leik.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is