Frábær byrjun skóp sigur Þórs/KA

Fótbolti
Frábær byrjun skóp sigur Þórs/KA
Stelpurnar kafsigldu gestina! (mynd: Egill Bjarni)

Þór/KA hóf leik í Lengjubikarnum í dag er liðið tók á móti nágrönnum sínum í Tindastól. Tindastóll leikur í fyrsta skiptið í efstu deild á komandi sumri eftir sigur í 1. deildinni á síðustu leiktíð og var því töluverð eftirvænting fyrir leiknum í dag.

Liðin eiga eftir að mætast í Kjarnafæðismótinu og hafa unnið alla leiki sína þar til þessa og mátti því búast við áhugaverðum leik en spennan fór hinsvegar ansi fljótt úr leik dagsins.

Strax á annarri mínútu kom Hulda Ósk Jónsdóttir Þór/KA yfir eftir laglega sókn og var gestunum líklega brugðið að fá mark strax í andlitið. Stelpurnar voru gífurlega beittar og strax innan við mínútu eftir markið tvöfaldaði Karen María Sigurgeirsdóttir forystuna og staðan orðin 2-0 eftir þriggja mínútna leik!

María Catharina Ólafsdóttir gerði loks þriðja markið á 20. mínútu sem í raun endanlega gerði útum leikinn. Murielle Tiernan lagaði þó stöðuna í 3-1 fyrir hálfleik en stelpurnar okkar höfðu ansi gott tak á leiknum.

Síðari hálfleikur var töluvert rólegri en sá fyrri en fjórða mark Þórs/KA leit dagsins ljós um kortéri fyrir leikslok er einn leikmaður Tindastóls varð fyrir því óláni að gera sjálfsmark. Margrét Árnadóttir innsiglaði svo endanlega sigurinn með góðu marki á 83. mínútu en Jacqueline Altschuld lagaði stöðuna í 5-2 fyrir Tindastól í uppbótartíma.

Niðurstaðan því ansi sannfærandi og góður sigur okkar liðs sem byrjar Lengjubikarinn af krafti. Það verður áhugavert að fylgjast með Tindastól í sumar en það er alveg morgunljóst að okkar lið ætlar sér stærri hluti á komandi sumri en á síðasta tímabili.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is