Frábær sigur KA á FH (myndaveislur)

Fótbolti
Frábær sigur KA á FH (myndaveislur)
Grímsi fagnar markinu góða (mynd: Þórir Tryggva)

KA tók á móti FH á Greifavellinum í gær í 14. umferð Pepsi Max deildar karla. Fyrir leikinn var KA í 10.-11. sæti og þurfti því á stigi eða stigum að halda. Það var einnig pressa á gestunum sem sátu í 7. sætinu og ljóst að um hörkuleik yrði að ræða.

Gestirnir byrjuðu betur og pressuðu stíft að marki KA en án árangurs. Leikurinn jafnaðist svo út er leið á fyrri hálfleikinn. Staðan var markalaus er flautað var til hlés og þannig var hún alveg fram á 82. mínútu þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson kom KA yfir með skoti fyrir utan teiginn.

Fleiri urðu mörkin ekki og sigurgleðin í leikslok var allsráðandi enda gríðarlega mikilvæg 3 stig í hús hjá KA liðinu. Leikmenn og áhorfendur fögnuðu vel og innilega saman en rúmlega 1.000 áhorfendur mættu á völlinn og sýndu frábæran stuðning.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum


Smelltu á myndina til að skoða myndir Sævars Geirs Sigurjónssonar frá leiknum


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna Friðjónssonar frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is