Glæsilegar KA jólakúlur til sölu

Fótbolti

Yngriflokkaráð KA í knattspyrnu er með glæsilegar KA jólakúlur til sölu en kúlan er fallega blá, 7 cm með gullslegnu KA merki og gylltum borða. Jólakúlan kemur í fallegum kassa, kostar 3.000 kr og rennur allur ágóði af sölunni til yngriflokka KA í knattspyrnu.

Athugið að jólakúlan kemur í afar takmörkuðu magni og því gott að tryggja sér eintak með því að panta í gegnum pöntunarformið sem allra fyrst.

Smelltu hér til að panta KA jólakúlu

Jólakúlurnar verða afhentar í KA-Heimilinu um miðjan desember og mun afhendingartími verða auglýstur þegar nær dregur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is