Glæsilegir fulltrúar KA á TM-mótinu

Fótbolti

KA sendi á dögunum 45 stelpur til leiks á TM-mótið í Vestmannaeyjum þar sem stelpurnar stóðu sig með mikilli prýði bæði innan sem og utan vallar. Það má með sanni segja að stelpurnar hafi verið félaginu okkar til fyrirmyndar en þær urðu Álseyjarmeistarar auk þess sem þær voru valdar prúðasta liðið.

Ekki nóg með það því stelpurnar unnu einnig sigur í hæfileikakeppninni en vikurnar fyrir mót æfðu stelpurnar dansatriði af miklum ákafa sem skilaði sigrinum góða.

Þá var Katla Bjarnadóttir leikmaður KA valin til að spila með landsliðinu á mótinu og óskum við henni til hamingju með þann mikla heiður.


Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir frá mótinu


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is