Hallgrímur Mar og Hrannar framlengja um 3 ár

Fótbolti
Hallgrímur Mar og Hrannar framlengja um 3 ár
Bræðurnir ásamt Hjörvari formanni knd. KA

Knattspyrnudeild KA gerði í dag þriggja ára samninga við þá Hallgrím Mar og Hrannar Björn Steingrímssyni. Báðir leika þeir algjört lykilhlutverk í liði KA og hafa gert það í fjöldamörg ár. Það er ljóst að þessir samningar eru lykilskref í þeirri vegferð sem KA hefur verið að vinna í undanfarin ár.

Hallgrímur Mar hefur leikið 189 leiki fyrir KA í deild og bikar og í þeim gert alls 52 mörk. Hann hefur byrjað sumarið af gríðarlegum krafti, er einn af markahæstu mönnum Pepsi Max deildarinnar með 3 mörk auk þess sem hann gerði þrennu gegn Sindra í Mjólkurbikarnum.

Hrannar Björn hefur leikið 118 leiki fyrir KA í deild og bikar og í þeim gert 1 mark. Hann hefur leikið lengst af í bakverði hjá KA en hefur verið að leika í sumar á kantinum og því ansi líklegt að mörkin fyrir KA verði fleiri áður en sumri lýkur.

Við óskum Hallgrími, Hrannari og knattspyrnudeild KA til hamingju með samningana og verður áfram gaman að fylgjast með þessum öflugu köppum innan okkar raða.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is