Igor Bjarni Kostic ráðinn til KA

Fótbolti
Igor Bjarni Kostic ráðinn til KA
Bjóðum Igor velkominn í KA (myndir: Fotbolti.net)

Knattspyrnudeild KA hefur ráðið Igor Bjarna Kostic og kemur hann inn í þjálfarateymi meistaraflokks KA auk þess sem hann mun vinna í afreksstarfi félagsins. Igor kemur til KA frá Haukum þar sem hann hefur stýrt meistaraflokksliði Hauka undanfarin tvö ár auk þess að leiða afreksþjálfun félagsins.

Þar áður starfaði hann hjá Norska knattspyrnusambandinu og var á árunum 2015-2019 yfirmaður akademíunnar hjá Ullensaker/Kisa Football í Noregi.

Á nýliðnu sumri jafnaði KA sinn besta árangur frá Íslandsmeistaraárinu 1989 er liðið endaði í 4. sæti efstudeildar. Á komandi tímabili ætlum við okkur enn stærri hluti og teljum við ráðningu Igors Bjarna mikilvægt skref í því ferli að efla leikgreiningu og vinnslu tölfræði hjá félaginu auk þess sem reynsla hans og þekking mun nýtast í að byggja upp enn fleiri efnilega leikmenn í yngri flokkum félagsins.

Við bjóðum Igor Bjarna velkominn í KA en hann kemur til starfa hjá okkur þann 1. nóvember næstkomandi.

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is