Jibril Abubakar á láni til KA

Fótbolti
Jibril Abubakar á láni til KA
Bjóðum Jibril velkominn í KA!

Knattspyrnudeild KA hefur fengið Jibril Abubakar að láni frá danska úrvalsdeildarliðinu FC Mydtjylland og mun hann leika með KA út ágúst mánuð. Jibril er tvítugur sóknarmaður og er 193 cm á hæð. Hann hefur vakið áhuga stórliða í Evrópu með frammistöðu sinni með U19 ára liði Mydtjylland í Evrópukeppni síðasta tímabil.

Undanfarin ár hafa KA og Midtjylland verið að koma á samstarfi þar sem ungir og efnilegir drengir frá KA hafa farið til reynslu til Midtjylland og er koma Jibrils liður í þessu spennandi samstarfi félaganna.

Það verður áhugavert að sjá hvernig þessi spennandi leikmaður aðlagast KA-liðinu og íslenska boltanum en Jibril er mættur norður og verður vonandi kominn með leikheimild sem fyrst. Við bjóðum hann velkominn í KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is