Jólafótbolti 21. og 22. des - skráning hafin!

Fótbolti

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu stendur fyrir skemmtilegum jólabolta dagana 21. og 22. desember næstkomandi fyrir hressa stráka og stelpur í 4., 5. og 6. flokk. Ýmsar skemmtilegar æfingar verða í boði ásamt leikjum og keppnum sem ættu að koma öllum í rétta gírinn fyrir jólin.

Yngri hópurinn æfir frá klukkan 9:00 til 11:00 og eldri hópurinn æfir frá klukkan 11:30 til 13:30. Skipt verður í minni hópa í hverjum aldursflokki og ættu því allir að fá að njóta sín í þessum skemmtilega bolta.

Skráning fer fram í Sportabler og kostar 6.500 krónur. Ef einhverjar spurningar eru varðandi jólaboltann er hægt að ná á Andra Fannari í andri@ka.is.

Smelltu hér til að opna KA verslunina í Sportabler


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is