KA leikur í Errea næstu 4 árin

Fótbolti
KA leikur í Errea næstu 4 árin
Nýr búningur verður kynntur von bráðar

Knattspyrnudeild KA og Errea á Íslandi hafa komist að samkomulagi og munu allir flokkar deildarinnar leika í búningum frá Errea næstu fjögur árin. Samningurinn nær bæði yfir keppnisbúninga sem og allan æfinga- og frístundafatnað.

"Það er okkur mikið ánægjuefni að semja við KA, Errea er með breiða vörulínu sem hentar félagi eins og KA einstaklega vel" sagði Hafsteinn Ómar Gestsson sölustjóri Errea við undirskriftina.

Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA segir að verið sé að leggja lokahönd á hönnun nýja keppnisbúnings KA og hann hlakki mikið til að kynna útkomuna. Búningurinn verði til sýnis í KA-Heimilinu á laugardaginn en þá verður haldinn kynningardagur á vegum KA og Errea. Hægt verður að máta og taka niður pöntun og því um að gera að líta við á laugardaginn og kynna sér nýja fatnaðinn.

Fyrirkomulag og tímasetningar verða kynntar á dögunum bæði hér á heimasíðunni sem og á Sportabler.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is