KA mætir Leikni F. á sunnudag

Fótbolti

KA tekur á móti Leikni Fáskrúðsfirði í Boganum sunnudag kl. 14:15 í Kjarnafæðismótinu. KA liðið hefur leikið gríðarlega vel á mótinu og hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína með markatölunni 22-0. Liðið hefur unnið stóra sigra á Völsung, KA2 og nú síðast Magna.

Sigur gegn Fáskrúðsfirðingum kemur KA liðinu í vænlega stöðu fyrir lokaumferðina þar sem liðið mætir Þór. Þó að vissulega sé um æfingamót að ræða þá er alltaf jákvætt að vinna bikar og eru strákarnir staðráðnir í að vinna mótið í ár rétt eins og liðið gerði í fyrra. Hvetjum ykkur eindregið til að mæta í Bogann, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is