KA - Þór á morgun í Kjarnafæðismótinu

Fótbolti

KA mætir Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins annaðkvöld í Boganum kl. 19:15. Allur aðgangseyrir að leiknum mun renna óskiptur til Grófarinnar geðverndarmiðstöðvar en aðeins kostar 500 krónur inn á leikinn. Frítt er fyrir 16 ára og yngri. Athugið að ekki verður posi á svæðinu.

KA er á toppnum með fullt hús stiga fyrir leikinn en Þórsarar eru tveimur stigum á eftir okkar liði. KA dugir því jafntefli til að tryggja sigur á mótinu en það er alveg klárt mál að strákarnir ætla sér ekkert annað en sigur og tryggja fyrsta bikarinn undir stjórn Óla Stefáns Flóventssonar.

Styðjum við gott málefni á sama tíma og við styðjum KA til sigurs í bæjarslagnum, áfram KA!

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn þá verður hann í beinni útsendingu á KA-TV og má nálgast útsendinguna hér fyrir neðan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is