Karen María með glæsimark fyrir U19

Fótbolti
Karen María með glæsimark fyrir U19
Tveir góðir sigrar hjá stelpunum

Karen María Sigurgeirsdóttir leikmaður Þórs/KA gerði sér lítið fyrir og skoraði glæsilegt mark fyrir U19 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem lagði Svía tvívegis að velli í æfingaleikjum í vikunni. Báðir leikirnir fóru fram í Fífunni í Kópavogi.

Fyrri leikur liðanna fór fram á þriðjudaginn þar sem Ísland vann 3-0 sigur. Hildur Þóra Hákonardóttir kom Íslandi yfir á 16. mínútu með laglegu skallamarki áður en Linda Líf Boama tvöfaldaði forystuna stuttu síðar. Það var svo Karen María sem kláraði leikinn með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn.

Liðin mættust svo aftur í dag og þá unnu stelpurnar 2-0 sigur. Sveindís Jane Jónsdóttir kom stelpunum yfir strax á 2. mínútu áður en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir batt enda á vonir gestanna með öðru marki Íslands á 64. mínútu.

Frábær úrslit hjá stelpunum í þessum tveimur leikjum og ljóst að við erum með hörkulið í þessum aldursflokki.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is