Mikið undir hjá Gróttu og KA í dag

Fótbolti

KA sækir Gróttu heim í Pepsi Max deildinni klukkan 16:15 á Vivaldi vellinum í dag. Það má heldur betur setja leikinn upp sem sex stiga leik en fyrir leikinn eru heimamenn í Gróttu í fallsæti með 8 stig en KA er með 16 stig og hefur auk þess leikið einum leik færra.

Með sigri færi KA því ellefu stigum framúr Seltirningum og ætti enn leik til góða er Grótta ætti aðeins fimm leiki eftir. Á sama tíma er það því lífsnauðsynlegt fyrir heimamenn að sækja sigurinn til að halda lífi í vonum sínum um áframhaldandi veru í efstu deild.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á leikinn en fyrir þá sem ekki komast á Vivaldi völlinn verður leikurinn í beinni á Stöð 2 Sport, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is