Myndaveisla frá 4-1 sigri Þórs/KA í gær

Fótbolti
Myndaveisla frá 4-1 sigri Þórs/KA í gær
Frábær sigur í gær! (mynd: Sævar Geir)

Þór/KA hóf sumarið heldur betur af krafti með 4-1 heimasigri á Stjörnunni í gær á Þórsvelli. Stelpurnar hófu leikinn mjög vel og var sigur liðsins aldrei í hættu. María Catharina Ólafsd. Gros gerði fyrsta markið áður en Karen María Sigurgeirsdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir komu liðinu í 3-0. Gestirnir minnkuðu muninn en annað mark frá Karen Maríu tryggði 4-1 sigurinn.

Sævar Geir Sigurjónsson ljósmyndari var á svæðinu og býður hér til myndaveislu frá leiknum og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Sævars Geirs frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is